Færsluflokkur: Kvikmyndir

300

300_01Ég og yngri sonur minn fórum á myndina 300 á laugardagskvöldið var og ég verð að segja að ég gleymdi að éta poppið á meðann henni stóð yfir! Þetta er ein magnaðasta mynd sem ég hef séð, gerða eftir teiknimyndasögu, með allri virðingur fyrir Superman, Batman, Daredevil, X-man, Sin City og fl. Ég las myndasöguna 300 eftir Frank Miller fyrir nokkrum árum, fékk hana á bókasafni Reykjanesbæjar og vissi í reun ekki hvað ég var að fara að lesa, þótti bara kápan flott! Og þegar ég fletti bókinni, hreinlega gleymdi ég að lesa hana fyrst, teikningarnar voru svo frábærar að mar átti ekki t il orð! Hún lá á náttborðinu hjá mér í góðann tíma og alltaf var ég að sjá eitthvað nýtt í hvert skipti, þegar ég opnaði hana (fékk reyndar sekt á hana fyrir að skila of seint). Því var það með hálfum hug að ég færi á bíómyndina, fanst einhvern veginn að ekki væri hægt að toppa myndasöguna með þvíað gera kvikmynd eftir henni. Myndin er eins og bókin, ramma fyrir ramma.

Einhverjir hafa gagnrýnt myndina fyrir að vera sögufölsun. Ok, í gegnum tíðina hafa verið gerðar meiri sögufalsanir en þetta, enda var Frank að skapa þarna sögu úr atburðum sem gerðust 450 árum fyrir Krist, og er sagan hans ekkert rangari en margar sögur sem reynt hefur verið að mynda. Enda átti þessi kvikmynd ekki að vera heimildarmynd. Fyrir mína parta er hún hrein og sönn, fyrir það að fylgja söguþræði Franks Millers í einu og öllu, draga fram hið Epíska andrúmsoft, sem hann skapaði með myndasögu sinni. Ég mæli eindregið með þessari mynd, fyrir þá sem hrífast af epískum sögum, hún slær mörgum þeirra út!


DaVinci code

Ég á alveg eftir að sjá þessa mynd, hef heyrt að hún sé bara nokkuð góð þótt hún sé ekki eins góð og bókin. Þegar ég las bókina, má segja, eins og vinkona mín orðaði það, að maður varð hreinlega öryrki á meðan, það varð ekkert úr verki hjá manni, las fram á nótt, las þegar maður kom heim úr vinnu, las eftir mat og las svo meira þegar komið var uppí rúm, gerði sem sagt ekkert annað en að lesa! annað eins gerðist þegar Englar og djöflar var tekin spjaldanna á milli, las bókina á tveim sólarhringum eða svo. Reyndar var það spennan sem hélt mér við lesturinn, ekki endilega plottið um Jesú og Maríu, ég lít á þessar bókmenntir bara sem skemmtilega skáldsögu, þó að hugmyndin sé góð, þ.e.a.s. þetta með Jesú og Maríu. Eins og fólk veit þegar, þá áttu þau, samkvæmt bókinni, að eiga barn saman og náði María og barnið að flýja til Frakklands og þar séu Mervíkingar afkomendur þeirra. Skemmtilegt. Var það ekki í Matrix einmitt stafræn persóna sem var kallaður Mervíkingurinn? Bara pæling.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband