Loksings!

Þá er ríkisstjórnin fallinn á endanum! Öll þessi sýndarmennska sl. 100 daga lauk nú í dag. Í stað þess að Geir hefði hreinlega rekið alla úr Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu, sett á fullt rannsókn í bankahruninu, fóru Sjálfstæðismenn í sama gamla gírinn; Að vernda sína eigin hagsmuni! Hefði Geir gert þetta strax í haust, væru atburðir dagsins aðeins hugarburður fólks og stjórnin haft þann starfsfrið, sem hún óskaði eftir. Þetta er ekki bara Samfylkingunni að "kenna", íhaldið ber einnig mjög mikla ábyrgð á ástandinu og því fyrr sem þeir viðurkenna það fyrir sjálfum sér, því betra fyrir þá. Í stað þess fara þeir strax í skotgrafahernað og byrja að kenna Samfylkingunni um alla sínar ófarir, eins og ummæli heilbrigðisráðherra bera með sér á mbl.is.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband