24.5.2006 | 00:10
Ian Andersson
Var að koma af mögnuðum tónleikum með gömlu kempunni úr Jethro Tull, Ian Anderson. Tónleikarnir voru hreint frábærir, mjög eyrna og heyrnavænir. Kappinn tók marga af helstu smellum sínum í klassískri útsetningu sem tókst mjög vel. Meira að segja guttarnir mínir, 14 og 16 ára áttu vart orð af hrifningu yfir tónleikunum, sem segir eiginlega hvað Ian og tónlist hans höfðar til margra í dag. Ég kynnist þessari tónlist með laginu Aqualung, eins og flestir geri ég ráð fyrir, en fór smátt og smatt að hlusta á meira eftir hann, þó að ég hafi aldrei lagst í mikla plötusöfnum frá hljómsveitinni. Reyndar eignaðist ég vinilsafn með hljómsveitinni, en þá var CD væðingin að byrja og ég átti ekki plötuspilara, sem var í lagi. Plöturnar rykfalla því í skáp. Með Ian í kvöld spiluðu félagar úr Symfóníu Íslands og einstaklingar, sem hann spilar með þetta prógram, sonur hans spilar á trommur m.a.
Það varð allt vitlaust í höllinni þegar lokalagið var flutt, Locomotive Breath. Kappin var svo með marga góða brandara á milli laga og skemmtilega útúrsnúninga. Fiðluleikarinn ungi, Lucia Micarelli, lék með honum á tónleikunum á fiðlu og var Ian að kynna lagið; "She is like a Swallow" en sagði þess í stað; She´s like to swollow"! við mikla kátínu tónleikagesta.
Ef ég ber saman þessa tónleika við þá sem voru á Skaganum ´92, naut ég þessa tónleika mun betur. Ég var að minnsta kosti ennþá með góða heyrn þegar ég og fjölskylda mín labbaði út í "haustkuldann" á leið heim.
Frábær skemmtun.

Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.