Stjórnmál :)

prakkarinnNonni litli var aðeins farinn að velta fyrir sér lífinu og tilverunni og einn daginn fór hann til pabba síns og spurði hann: "Hvað eru stjórnmál?" Pabbi hans svaraði: "Jú sjáðu til, það er kannski best að ég útskýri það á þennan hátt: Ég vinn fyrir fjölskyldunni og þess vegna skulum við kalla mig Auðmagnið. Mamma þín stýrir heimilinu og ræður útgjöldunum og þess vegna skulum við kalla hana Stjórnvöld. Við erum til þess að sinna þörfum þínum svo við skulum kalla þig Fólkið. Við getum siðan haldið áfram og kallað barnfóstruna Öreiga. Litla bróður þinn skulum við kalla Framtíðina. Farðu nú og veltu þessu fyrir þér og athugaðu hvort þetta kemur ekki heim og saman. Þannig að Nonni litli fór í háttinn og hugsaði stöðugt um það sem pabbi hans sagði honum. Um nóttina vaknar hann upp við grátinn í bróður sínum. Þegar hann kemur inn í herbergi hans finnur hann fljótt að bleian hans er blaut og mikil fýla af henni. Hann fer inn í svefnherbergi foreldra sinna og finnur mömmu sína sofandi. Þá fer hann að herbergi barnfóstrunnar og finnur að hurðin er læst. Hann kíkir inn um skráargatið og sér föður sinn í rúminu með barnfóstrunni. Að lokum gafst Nonni litli upp og fór aftur í herbergi sitt og sofnaði.

Næsta morgun segir hann við föður sinn. "Pabbi, ég held núna að ég skilji hvað stjórnmál ganga út á." Gott segir faðirinn, segðu okkur frá því.
Þá sagði Nonni litli: " Jú sjáðu til, á meðan Auðmagnið riðlast á Öreigunum eru Stjórnvöld steinsofandi. Fólkið er hundsað og Framtíðin er í djúpum skít...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

góður

Ólafur fannberg, 28.3.2007 kl. 12:35

2 Smámynd: Margrét M

he he hhe góður ...

Margrét M, 28.3.2007 kl. 14:13

3 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

flottur !

ljós til þín og bara að brosa framan í heiminn

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 28.3.2007 kl. 14:26

4 Smámynd: Örvar Þór Kristjánsson

Snilld

Örvar Þór Kristjánsson, 28.3.2007 kl. 14:30

5 Smámynd: Guðmundur Þórðarson

Þessi er snilld

Guðmundur Þórðarson, 28.3.2007 kl. 15:32

6 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Heiða B. Heiðars, 30.3.2007 kl. 14:23

7 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Þessi var beint i mark hahahah. Takk fyrir allar kveðjurnar

Klem og knús

Sigrún Friðriksdóttir, 30.3.2007 kl. 18:51

8 Smámynd: Agný

Góður  og nokkuð mikið til í þessu.....

Agný, 1.4.2007 kl. 12:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband