París

lourve.jpg
Jæja, þessi ferð hófst eiginlega mjög snemma á föstudagsmorgni, kl. 4:30 vöknuðum við, ég  og dóttir mín og lögðum loft undir væng. Ástæðan fyrir því að mæta svona snemma á flugstað, er einfaldlega sú að ég ÞOLI ekki langar biðraðir og vildi losna við sem mest af þeim á flugstöðinni. Reyndar tókst okkur að bíða í korter, sem er ásættanlegt. Sem sagt, kl. 5:30 um morgunnn vorum við kominn inná það allra helgasta, Fríhöfnina. Eitthvað var nú eytt af aurum þar, rifinn í sig morgunmatur og öllari rann ljúflega niður með beikoninu. Fékk meira að segja áritaðan CD frá þeim Baggalútsfélögum rétt áður en við áttum að stíga um borð. Reyndar var þá búið að tilkynna 25 mín. seinkun. Þegar um borð var komið og allir sestir og búið að læsa vélinni, tilkynnti flugstjórinn að vegna umferðar yfir París, þá seinkaði flugtaki um hálftíma og urðum við að bíða um borð! Þarna var komin tæplega klukkutíma seinkun! Og ekki að maður sé í einhverjum Saga Klass sætum þarna í vélinni, það var svo þröngt að ég varð að biðja manninn í næstu sætaröð við hliðina að standa upp, svo að ég gæti borðað í nefið á mér! En flugið tókst ágætlega, 3 tímar og fimm mínútur tók það okkur að fljúga þetta en þá skeði það! Crying
Það var víst einhver kaldskítur þarna á DeGaul vellinum svo að rampurinn komst ekki upp að vélinni, kostaði það einn og hálfan tíma hangandi í vélinni, bíða eftir að veðrinu slotaði. Þegar við loksings komumst út þá tók það klukkutíma að bíða eftir töskunum! Ég átti bara ekki til aukatekið franskt orð yfir þessu öllu samann. Seinkun uppá 3 og hálfan tíma og áttum eftir að koma okkur á hótelið. Fyrst þurfi að finna rútu til að koma okkur á lestarstöðina og tók það háftíma og svo var endalaus biðröð í sjálfsala og annað og tók það 45 mín að fá bara miða og svo tók ferðin með lestinni að Gard Du Nord um hálftíma og svo labb í 25 mín til að komast á hótelið, eða kústaskápinn, því að herbergin voru svo lítil að ég varð að bakka inn. Við vorum komin á hótelið um hálf sex um kvöldið, búin að vera vakandi í hálfan sólahring og ekki enn farin á Lourve! Dagurinn ónýtur! Lá við að ég færi bara heim! En, safnið var opið til kl. 10 um kvöldið svo að við örkuðum að næsta Metro og tókum lest áleiðis. Fundum út í hvaða átt við áttum að fara og örkuðum af stað. Þá var ég þegar orðin þreyttur í fótunum eftir allt labbið. En inná safnið komumst við. áttum ekki orð yfir hvað portið með píramítanum var fallegt þarna í kvöldrökkrinu. Áttum von á biðröð en hún gekk áfram eins og í lygasögu. Lobbíðið í Lourve er barasta upplifun út af fyrir sig. En inn á DENON álmuna var arkað og beinustu leið á the Grand Gallery. Maður upplifði bara The DaVinciCode aftur, þarna var staðurinn þar sem dauði kallinn lá og allt! En lengdin á þessum gangi, mar! W00t
Þegar ég og dóttir mín gátum loksings troðið okkur og olnbogað í gegnum mannfjöldan til að komast að Monu Lísu, stóð maður þar og gapti í korter í það minnsta. Gapti yfir þeirri fegurð sem þarna var, yfir öllum þessum mannfjölda sem var í salnum og gapti yfir því hvað myndin var lítil! Þetta ver eiginlega bara smá léreftpjatla, svei mér þá! En falleg var hún þrátt fyrir hrukkurnar á myndinni. Já, gott fólk, þarna missti ég sveindóminn! Búnn að sjá Monu Lisu! Þá var að snúa sér að öðrum meisturum. Ég snéri mér við í salnum og sá þá stærstu mynd efver, sko! Á móti ML var mynd sem var stærri en húsið mitt að flatarmáli og ramminn var eins og límtrésgrind í Hagkaupum í Smáralind! "Hvernig gat hann málað þetta", galaði dóttir mín. Ég setti mig í prófessor-stellingar og sagði að svona kallar hefðu verið með milljón manns í vinnu, þeir höfðu bara staðið á gólfinu og skipað fyrir. Sem var ekki fjarri lagi, því að flestir stærri meistarar Endurreisnar og fram undir 1850, höfðu haug af nemum í vinnu hjá sér, það var þeirra skóli. Við náðum einnig að skoða Venus frá Mílano í þessari lotu, en þá vorum við orðin úrvinda af þreytu og fundum okkur stað til að borða á og vorum sofnum um 11 um kvöldið, tilbúin í slaginn daginn eftir, en þá var á áætlun að skoða aftur hluta af Lourve og fara á d´Orsay listasafnið, sem allir Impressionistarnir voru, Monet, Manet, Pizzaro, Gauginn, Sysley og fl. Ooo, ég gat varla sofnað fyrir spenningi! En það stóð ekki yfir nema í nokkrar sekúndur því að um leið og við lögðum höfuð á kodda, vorum við sofnuð!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurlín Margrét Sigurðardóttir

hurru, ég sá einhverstaðar tilgátu um að andlitið á Monu Lísu sé af ungum pilti, hárinu og kjólnum bætt svo við seinna... æ, smápúki í mér..

Sigurlín Margrét Sigurðardóttir, 14.12.2006 kl. 14:24

2 Smámynd: Bragi Einarsson

jú, ein tilgátan er líka sú að andlitið sé samhverfa af Leonardo sjálfum! En hér eru nokkrar staðreindir:
talið er að myndin sé máluð 1503-1506 (reyndar var Leo með hana í eftirdragi  í um 20 ár) Myndin er máluð í Flórens, Ítalíu, er staðsett núna á Lourve, París, er 20X30 tommur, máluð á við, Mona Lisa var gift  Francecsco del Giocondo, sem gefur vísbendingu um að hún hafi verið til í raun og veru, Nat King Cole söng um hana frægt lag, myndin er máluð með svokallaðri Sfumato tækni, enginn veit hvers vegna hún brosir, en síðustu rannsóknir benda til þess að hún hafi verið vanfær, þegar Leo málaði hana, henni var stolið af Lourve safninu 1911.

Bragi Einarsson, 14.12.2006 kl. 15:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband