Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Atkvæðaveiðar hafnar hjá Framsókn!

Það var virkilega gaman að sjá og heyra formann Framsóknar viðurkenna það svo afdráttarlaust í fréttum í gær að þátttaka Íslendinga í hildarleiknum í Írak, hafi verið röng og jafnvel (tæknileg?) mistök. Það er greinilegt að með nýjum formanni, þá séu nýjir vindar og ferskari vindar væntanlegir frá þessum gamla kredduflokki. Flokkur sem fyrir löngu hefur glatað hugsjónum sínum í valdagræðgi og allt of löngu samstarfi við enn meiri kreddu- og sjálfgæsluflokki, Sjálfstæðisflokki. Meira að segja er Kristinn H.  orðin "inn" í hugmyndafræði Framsóknar, maðurinn sem hefur þurft að sitja úti í kuldanum ansi lengi, vegna andstöðu sinnar við stefnu flokks síns í ansi mörgum málum. Það var líka gaman að sjá innvígða flokksmenn klappa dátt, þegar Jón sagði að það þurfi að "tala um málin hreinskilningslega (lófaklapp all gríðarlegt!) um þetta, hvort sem einhver okkar tengdust þessu sjálf eða komu þar hvergi nærri". Á hann þar við sjálfan sig, að hann hafi hvergi komið þar nærri? Það er auðvelt að vera stikkfrí í sínum flokki, sem greinilega og staðfastlega studdi þessa ákvörðun, eftir að Davíð var búinn að ákveða gjörninginn fyrir Halldór á sínum tíma. Það er samt greinilegt að Framsóknarflokkurinn er farinn í harða kostningabaráttu og ætlar sér greinliega að endurskoða afstöðu sína upp á nýtt. Það er bara gott og vel. En þrátt fyrir það þá ætti Famsókn og Sjálfstæðisflokkur helst að taka sér ævilangt frí frá Alþingi eða að minsta kosti næstu tvo kjörtímabil og endurskoða sín mál all rækilega. Þrátt fyrir að Framsókn og Jón séu að sýna einhverskonar "iðrun" ættu kjósendur samt ekki að láta blekkjast í næstu kosningum. Leggjum Framsókn niður. Rasskellun Sjálfstæðismenn og gerum þetta þjóðfélag mannúlegra en það er. Við erum nógu rík til þess. Að minnsta kosti er ansi frjálslega talað um það við hátíðleg tækifæri. En það er greinilegt að víða er pottur brotinn, því ef allt væri í svo í rífandi lagi, hvers vegna eru þá AFA samtökin komin með annan fótin í framboð? Væri þá ekki rétt að Öryrkjabandalagið geri slíkt hið sam. Einstæðar mæður? Innflytjendur? Ljósmæður?Skólafólk? Strætóbílstjórar?....

Vinur minn sagði við mig í gærkveldi að til þess að lýðræðið verði virkt, þá ætti að vera 15 sæti á alþingi, þar sem væru úthlutuð til manna í þjóðfélaginu eins og happdræti, það væri hreinlega dregið úr nöfnum þeirra sem ekki væru þegar í framboði, bara venjulegt fólk, flakarinn á Flateyri, lyftarastjórinn á Akureyri, gröfustjórninn á Grundafirði, afgreiðslustúlkan á Akranesi. "Til hamingju, þú varst dregin úr stórum poti til að sitja sem fulltrúi litla mannsins og óháðra á Alþingi"!
Ég verð að segja að ég hef heyrt margt vitlausara um ævina!

Því segi ég enn og aftur og stend við það: Lifi byltingin! 


Meira um ríkisstyrki

Pétur Blöndal skeytaði laglega í ræðustól í dag! Hann er á móti öllum ríkisstyrkjum til lista og menningarmála að hætti einræðisríkja! Kannski í mesta lagi að greiða þeim eina krónu á mánuði. Ok. Þetta getur hann blaðrað svo frjálslega um, rétt eftir að hann var búinn að samþykkja að stjórnmálaflokkar fái um og yfir 300 mílljónir í framfærslu í formi ríkisstyrkja? Þarna kemur frjálshyggjan sterk fram. Allt í lagi að svelta og skera niður allt til "mjúku" málanna svokölluðu, bara ef flokksmaskínur fái milljónir! Það ætti að hengja svona menn upp á afturlöppunum, berrassaða á Arnahóli í 10 stiga frosti. Skammastu þín, Pétur Blöndal, skammastu þín Devil

Gott á þá!

Jæja, þá hafið þið það. Menn farnir að skæla í Valhöll yfir Árna J. Skyldi prófkjörið hafa verið tæknilegt mistök? 

Sjá frétt hér


Ríkisreknir stjórnmálaflokkar?

Ja, hérna! Undanfarin ár og áratug hafa íhaldsmenn stundað áróður fyrir einkarekstri, sem er í sjálfu sér gott mál, sérstaklega hvað varðar bankastofnanir og aðrar þjónustur sem voru á vegum ríkisins. Þó svo að hagkerfið hafi haft tiltölulega gott af einkavæðingu bankana, gleymdist kannski skattahlutinn í þeirri einkavæðingu, en það má deila um þau mál endalaust. Íhaldið hefur talað fyrir einkavæðingu á öllum stigum, einkavæðing í raforkugeira, einkavæðing í skólum og leikskólum, einkavæðing hér og einkavæðing þar. Sumt gengur upp  enn annað ekki. T.d finnst mér það vera svolítið skrítið að vera tala um einkavæðingu á framhaldskólum (sb. nýja framhaldskólann í Borgarnesi) en svo þarf ríkið samt sem áður að punga út fyrir rekstri og leigu! Undanfarin misseri hefur verið rifist mikið á hinu háa Alþingi um fjáreiður stjórnmálaflokka og vilja sumir opna allt uppá gátt en aðrir vilja helst hafa þetta leyndó áfram. Nú hafa þingmenn eða nefnd á vegum þeirra, samþykkt ályktum um að stórauka fjármagn til stjórnmálaflokka gegn því að setja þak á peningastyrkjum til þeirra frá einstaklingum og fyrirtækjum. Hm. Var einhver að tala um að gera RUV að hlutafélagi? Ég sem styð ekki XD, XB, XS, XF eða XV, á nú allt í einu að fara borga fyrir rekstur á þessum flokkum! Það á semsagt að setja einhverns konar nefskatt á skattgreiðendur til reksturs flokkana. Ég hef engann áhuga að borga nokkuð til sjálfstæðisflokksins eða annara flokka með einhverju föstu gjaldi á ári, ég ætti að geta tekið þá ákvörðun sjálfur, ef ég hefði áhuga á því.

Það var líka athyglisvert að heira í fyrrverandi framkvæmdarstjóra Sjálfstæðisflokksins í fréttum í gær, að hann óttaðist að mjög fjársterkir aðilar geti hreinlega "keypt" stjórnmálamann eða flokk og því verði að setja einhverjar reglur. Skrítið af honum að taka svona til orða. Ég veit ekki betur að áður fyrr hafi einmitt hans flokkur fengið milljónir frá einstaklingum og fyrirtækjum í styrki og hvað er það annað en að "kaupa" sér atkvæði? Eða er gamla heildsölu-íhaldið orðin deyjandi stétt? Og er verið að setja þessar reglur til að tryggja að Baugsveldið geti ekki náð óeðlilegum áhrifum í stjórnmálum? Eru menn komnir í hring hérna eða hvað?
Þetta er lýðskrum og ekkert annað.
Ég veit ekki hvort að fólk hafi tekið eftir því að í þessum tillögum er einnig verið að setja meiri álögur á sveitarfélög, en nú verða sveitarfélög að styrkja alla þá aðila, sem eru í framboði, fara í framboð eða eru að hugsa að fara í framboð. Hvaðan á sveitarfélögin á fá þetta aukna fjármagn? Á að hækka skatta? Eða ætlar Ríkið að leggja pening í þetta? Væri þá ekki nær að nota þessa peninga í skólakerfið?

Sá spyr sem ekki veit...Sick

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1236747


Allt á floti allstaðar!

41886_vatnsskemmdir_a_varnarsvaedi-2.jpg

Mikið lifandi skelfing er nú fólk þverheimskt! Svona fara hlutirnir þegar menn eru ekki vakandi. Hvers vegna í andskotanum þurfa hlutirnir að taka svona langan tíma hjá hinu opinbera? Hefði ekki verið nær að vera búin að stofna þetta f*****g  Þróunarfélag á Keflavíkurflugveli fyrir löngu en að láta hlutina að fara svona. 200 íbúðir ónýtar! Tjón veltur á hunduðurm milljóna! Og hver borgar? VIÐ! Helvítis grasasnar Angry.

Lesið um þetta hér. 


París og Mona Lisa

c_documents_and_settings_bragi_my_documents_my_pictures_vert_mona.jpg
Sko, haldið þið ekki að kallinn sé barasta að skella sér á Lurve í París! Dóttirin plataði þann gamla og við erum að fara 8. des. og skoða alla helstur meistarana yfir eina helgi. Ég var að gamni mínu að "gúggla" og sló inn Mona Lisa og datt á þessa geðveiku síðu með myndum af Lísu gömlu. Hafið gaman af Grin , ég gerði það.

Mikið lifandi, skelfing eru auglýsingar leiðinlegar!

xfactor-icon.jpg

Dísess! Ok, ég sat ásamt minni ekta kvinnu og syni í sófanum áðan og horfði á X-Factorinn. Þegar við vorum búin að horfa í 5 mínútur komu jólaauglýsingar í 10 mínútur og svo 2ja mínútna ræma um hvað kæmi næst og þá komu jólaauglýsingar aftur og svo.... Í stuttu máli, klukkutíma þáttur var í raun ekki nema 15 mín. ef auglýsingum og öðru væri klippt í burtu! Nú fer að vaða yfir mann tímabil þar sem maður hefur góða afsökun á að horfa EKKI á sjónvarp, minnsta kosti fram að jólum. Nú fer að renna sá tími í hönd að 60% útsendingatímans eru jólaauglýsingar! Og verður sama á hvaða stöð maður reynir að glápa á, RUV og RUV+, Stöð2 og Stöð2+, Skjár1, 2, 3, 4, 5, 6, 7 ,8, 9 og 10, og líka Sirkus 1, og 2 og 3. Einnig fer maður að stilla á gömlu gufuna í útvarpinu, Laufskálann, nútímatónlist og útvarpsöguna og veðurfréttakallin með málmröddina. Einnig fara blöðin nánanst ólesin í sorpið og bæklingarnir að haugast inn um bréfalúguna hjá mér. Fyrir síðustu jól varð ég að skipta 3var um gorm í lúgunni vegna álgags! Og borga aukagjald til Kölku vegna þess að ég var komin langt, langt, langt yfir leyfilegt hámark.

Ok,svona er víst frelsið, menn hafa frelsi til að myrða saklaus tré, bara til þess að saklaus neytenda-fórnarlömb eins og ég, hendi þeim á haugana. Ætli þetta sé það sem kallast hringrás lífsins? 

Shocking


Hættulegir íslendingar?

Var að jafna mig eftir lestur Hannesar Hólmsteins um Kalda stríð sögunar í Fréttablaðinu. Brrrr. Hann er samur við sig. Samkvæmt bullinu hans, þá er það öllum vinstri sinnuðum mönnum á íslandi að kenna að Kalda stríðið var eins kallt og raunin varð. Ég hef áður á þessum vettvangi talað um það að "kalda stríðið" var ekki einhliða barátta Rússa gegn vesturveldum. Baráttan var gagnkvæm. Vissulega tóku menn afstöðu með eða á móti, það gera menn ennþá. Vissulega höfðu menn í meginatriðum rangt fyrir sér og hafa enn. Vissulega var slegist á Austuvelli og má vera að það eigi eftir að gerast aftur. Hannes talar og skrifar alltaf eins og hann og hugmyndir hans séu þau einu réttu, sama hversu vitlaus hún kann að vera. Allavega fyrir okkur hin sem eru ekki sammála honum. Og það er einmitt kjarnin. Það eru ekki allir sammála honum og þess vegna verða "köld stríð" vegna þess að menn eru ósammála. Maður er að vona það á 21. öld að stjórnmálamenn tileinki sér mannúðlegri stjórnmálastefnu, hvort sem hún er til hægri eða vinstri, og hætti að grenja þó að einhverjir séu ósammála þeim. Af því að honum hefur verið tíðrætt um Sóíalista, Kommúnista, Gúlakið, Rússa, njósnara og leyniþjónustur, þá stunduðu bandaríkjamenn álíka kaldasríðs rugl og rússar! Má ég bara nefna Joseph MacCarty (held að það sé stafsett svona) tímabiðið í USA. Þar sem, ekki bara vinstri sinnuðum, fólki var hreinlega smalað á frekar ógeðfeldann hátt  fram fyrir einhvers konar "rétt-trúnaðar-nefnd" og borið uppá þá sakir, sem ekki var fótur fyrir. Leikarar, fréttamenn, rithöfundar og bara venjulegt fólk þurfti að þola mannorðsmorð og margir fluttu úr landi vegna þessara ofsókan. Þetta voru ofsóknir af verstu sort í hinum vestræna heimi á okkar tímum og ég hef aldrei séð stafkrók frá Hannesi um "þessi" mál. Væri bara betra að viðurkenna að þessir hlutir áttu sér stað og við ættum að læra af þessu? Í mínum huga er Hannes "öfgamaður" eins og aðrir öfgamenn, hann er hægri öfgamaður! Hann snýr öllu á haus, sér í hag.

Lifi byltingin!Bandit


Glammrrrr!

216717961_a882c85a89_o.jpg
Djö.... er kalt úti! Það hreinlega frjósa á manni heilastöðvarnar þegar maður fer út í þennann kulda á morgnana. Svo kalt að það hefur ekkert gerst hér á blogginu mínu bara síðan síðast! Ég er búsettur á þannig stað að bíllinn er fljótandi í salti vegna sjóroks. Þurfti að bæta á rúðupissið á bílnum í dag enda hef ég ekki undan að skola rúðuna á bílnum. Varð líka að splæsa á bílinn nýjum rúðuþurrkum. Lét kuldagallakarlinn á Esso sjá um þetta fyrir mig. Gott á hann! Það er svo mikið frost hjá mér núna að ég hef eiginlega ekkert að fjasa um, enda er ég eiginlega orðlaus eftir "tæknilega" bullið í honum Árna þessa dagana. Ætla að fá mér heitt kakó og skríða undir sæng og fara að lesa. Sleeping

Hvað er góð kosning?

prosent.jpg

Hef skemmt mér sæmilega undanfarna daga út af ummælum stjórnmálamanna, sér í lagi toppanna á D-lista og S-lista. Hver þykir sinn fugl fagur, ekki er nú vöntun á því, skal ég segja ykkur. Fyrir rúmum áratug þótti það vera glæpur hjá Íhaldinu, þegar menn fengu “rússneska” kosningu, hvort sem það var nú í formannskjöri, varaformanns eða prófkjöri. Það þótti ekki vera lýðræðislegt, ef sitjandi þingmaður eða formaður fékk ekki mótatkvæði. Vissulega má Geir vera glaður með að fá yfir 90% atkvæða í 1. sæti í Reykjavík, hann má eiga það, kallinn. En þetta var “rússnensk” kosning og Þorgerður tekur undr það. En þrátt fyrir þessa góðu “kosningu” þá eru þarna um 7% íhaldsmanna sem eru EKKI ánægðir með formann sinn, og það ættu þeir að hafa áhyggjur af, sérstaklega þegar þeir segja og fullyrða, að EINHUGUR er á bak við Geir. Ég myndi reyna að sannfæra þessi 7% að ganga af villu sinni, ef ég væri Geir. Talan 100% er bara svo miklu skemmtilegri tala. Síðan er skotið á Samfó-liðið; ISG fékk víst “aðeins” 70% í fyrsta sæti og má ætla það að 30% séu ekki ánægðir með hana á toppnum og vilja Össur frekar. Maður myndi ætla að það væri vantraust á sitjandi formann að fá ekki fleiri atkvæði, en  þetta á víst að heita opinn og lýðræðislegur flokkur sem þolir ekki “rússneska” kosningu. Þorgerður var alveg himinlifandi í Silfrinu á sunnudag og valtaði yfir ISG og sagði að flokkurinn væri “ótrúverðugur”. Hm.


Svo er það Árni M. Blessaður karlinn, fékk innan við 50% atkvæða og hann hélt ekki vatni yfir því hve ánægður hann væri með prófkjörið! Bíðið við, er þetta ekki í algjörri andstöðu við það sem átti að gerast í Reykjavík hjá íhaldinu, það áttu ALLIR að styðja við bakið á sínum manni, þ.e. góð kosning sýndi gott bakland? Samkvæmt þessu á Árni M. ekki gott bakland í Suðurkjördæmi. Hreinlega myndi ég segja að þetta væri vantraust á sitjandi þingmann og ráðherra, að fá ekki meira út úr prófkjörinu en þetta og nánast verða “buffaður” af fyrrverandi Kvíabryggjumanni! Árni J. sagði það eftir prófkjörið að nú ætti að líta fram á veg og gleyma því liðna! NEI. Menn ættu aldrei að gleyma því sem Árni J. gerði og sagði og laug að alþjóð, þegar hann var nappaður. ALDREI! En, fólkið kaus hann í 2. sæti og mér þykir það vera umhugsunarvert að fólk skuli vera svo illa haldið, að kjósa siðblindann mann á þing! Eins og einhver sagði; Mundi t.d. Tryggingarstofnun endurráða gjaldkera, sem hefur stolið milljónum úr kassa stonunarinnar? Hm, neibb! Held ekki, þó svo að sá ímyndaði gjadkeri hafi setið af sér dóm og allt það hefur endurgreitt samfélaginu skuld sína.
Vonandi sjá þetta allir í vor.


Lifi byltingin! Bandit


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband