Mokið, mokið, mokið meiri snjó!

Hvert sem litið er, allstaðar snjór! Það hefur ekki sést svona mikill snjór hér síðan síðast en það var sirka fyrir 8 eða 9 árum síðan. Í morgun varð ég að snæua við, lagði ekki á Garðveginn vegna blindbils, þrátt fyrir Sportage jeppling! Sem betur fer, þegar ég reyndi aftur einum og hálfum tíma seinna, taldi sonur minn, sem með var í för, eina 9 bíla sem farið hafa útaf á leiðinni. Ábyggilega bílarnir sem ég mætti á leið í Garðinn þegar ég snéri við. Var að pæla í að fara að moka innkeyrsluna í dag, en læt það bara eiga sig. Spáin fyrir morgundaginnn er ekki glæsileg, hlýnar að vísu en stormur og rigning. Kræst! Þá hlítur eitthvað af þessum snjó hverfa.

Jæja, sama er mér, hef það bara gott hér í stofunni, sötra kakó og dunda við vefsmíðar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét M

Bragi minn er ekki bara málið núna að fá sér stærri jeppa ..

Margrét M, 8.2.2008 kl. 08:19

2 Smámynd: Ari Guðmar Hallgrímsson

Þetta er hugmynd sem þú verður að fara að íhuga,Skaginn fer að verða óbyggilegur fyrir aðra en þá sem eiga  stora jeppa eða snjósleða. Hvað um snjóbíl???

Kveðja

Ari Guðmar Hallgrímsson, 10.2.2008 kl. 09:04

3 Smámynd: Margrét M

góður Ari

Margrét M, 10.2.2008 kl. 10:47

4 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

hljómar svo huggulegt.

hérna er lveg ótrúlega heitt miðað við árstíma  en veturinn getur enn náð að kíkja við !

hafðu fallegan dag inni í húsi ! 

Bless í dag

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 11.2.2008 kl. 16:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband