Góður!

... útskýrð á einfaldan hátt, með kúm.

SÓSÍALISMI

Þú átt 2 kýr.
Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra.

KOMMÚNISMI

Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.

FASISMI

Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.

NASISMI

Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo.

SKRIFRÆÐI

Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri mjólkinni.

HEFÐBUNDINN KAPITALISMI

Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast vel. Þú selur síðan kúabúið og sest í helgan stein og lifir á fjármagnstekjunum.

SÚRREALISMI

Þú átt 2 gíraffa.
Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám.

BANDARÍSKT STÓRFYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og blóðmjólkar svo hina og þvingar til að gefa af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt niður dauð.

ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR - ÚTRÁSAR KAPITALISMI

Þú átt 2 kýr.
Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar.
Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess (sem ert þú sjálfur) selur þér síðan aftur réttinn að öllum 7 kúnum.
Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eignaréttarsaming að einni til viðbótar.
Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr.
Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði.

FRANSKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess að þú vilt eiga þrjár kýr.

JAPANSKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja teiknimyndahetju, 'Kúmann', sem nær miklum vinsældum um allan heim.

ÞÝSKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og
mjólka sig sjálfar.

ÍTALSKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú veist ekki hvar þær eru niðurkomnar. Þú ákveður að fara í hádegismat.

RÚSSNESKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr.
Þú telur þær aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr.
Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að þú átt 2 kýr.
Þú hættir að telja og opnar aðra vodkaflösku.

SVISSNESKT FYRIRTÆKI

Þú átt 5000 kýr.
Engin þeirra tilheyrir þér í raun. Þú rukkar eigendurna fyrir geymsluna.

KÍNVERSKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og
blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem sagði frá stöðunni eins og hún er í raun og veru.

INDVERSKT FYRIRTÆKI

Þú átt tvær kýr.
Þú tilbiður þær.

BRESKT FYRIRTÆKI

Þú átt tvær kýr.
Báðar eru með kúariðu.

ÍRASKT FYRIRTÆKI

Allir virðast eiga fjölda kúa.
Þú segir öllum að þú eigir enga. Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í landið. Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó amk í lýðræðisríki núna...

ÁSTRALSKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Bissnessinn gengur vel.
Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp á það.

NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI

Þú átt tvær kýr.
Sú til vinstri er asskoti löguleg.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband