Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Blindir á öðru og sjónskertir á hinu

Geir var að halda ræðu! Hann hélt ræðu um hvað ríkið mokar inn af seðlum vegna þess að bankar og einstaklingar, sem greiða bara 10% fjármagnstekjuskatt, skila miklu til kassans. Svo miklu að bara innkoman af því borgar menntun barnana okkar í landinu! Vá, Með sömu reikniskúnstum má þá ætla að ef hann myndi lækka tekjuskatt okkar einstaklingana í 10% líka myndi ríkið verða svo ríkt að hægt væri að greiða upp allar skuldir þjóðarinnar, gefa öldruðum og öryrkjum áhyggjulaust æfikvöld, borga góðan lífeyrir  til þegna landsins og bara allt! Hann hlítur að sjá þetta maðurinn, hann er ekki svo vitlaus í að reikna! Eða hvað? Er þetta bara einn angi af þeirri misskiptingu í þjóðfélaginu sem við ætlum að láta yfir okkur ganga aftur og aftur. Þegnar landsins eru eins og hvert annað bölvað leiguþý sem má okra á og skattpína, en Aðallinn fleitir rjóman af öllu?

Þetta kalla ég að vera blindur á öðru og sjónlaus á hinu!

Lifi byltingin Devil


Leynisamningar

ég er að lesa bókina um Óvini Íslands og er að mörgu leiti fróðleg lesning. Hún lýsir nokkuð vel þeirri paranoju sem ríkti hér á landi um og eftir seinna stríð. Ber þar hæst  hin "meintu" hlerunarmál sem reyndar hefur verið viðurkent af öllum nema aðilum í Sjálfstæðisflokknum, að hafa verið stunduð. Bjarni heitinn Ben og Có voru gjörsamlega að fara úr límingunum vegna þess að nokkrir kommar voru að blása sig hása og sáu stjórnarliðar að bylting væri í uppsiglingu. Sem er líka dálítið fyndið, því að samsettning Komma á íslandi miðað við löndin í kringum okkur, voru ekki að sama meiði, þrátt fyrir að Kommúnistaflokkur Íslands hefði í stefnuskrá sinni sósíaliska byltingu, þá voru þeir óttalega veikburða og höfðu ekki til þess nægilegan stuðning landsmanna. Meira að segja háttsettir hershöfðingjar í bandaríska hernum töldu að engin hætta væri á ferðum, þra´tt fyrir ða Bjarni og félagar væru endalaust að óska eftir hjálp fré Kananum og endaði þau ósköp að Alþingi samþykkti inngöngu í Atlandshafsbandalagið, sem var sterklega mótmælt á Austurvelli. reyndar kemur fram í bókinni að ástæðan fyrir uppþotinu hafi í raun verið sú að stuðningsmenn stjórnarinna, hinir svokölluðu "hvítliðar" hafi fjölmennt á svæðið, vopnaðir kylfum og dóti og Heimdellingar hvatt fólk til að mæta á Austurvöll, stjróninni til varnar! tek það fram að nokkru áður hafi mönnum verið fjölgað mikið í lögreglu borgarinnar áður en þetta gerðist.
Hvað með það, þessi frétt vakti hjá mér létta kátínu og er eiginlega sönnun þess að Sjálfstæðismenn fyrr og síðar eru illa haldnir af leynimakki.

Frown


Makalaust!

Jæja, ríkisstjórnin er með á teikniborðinu áætlun um að þeir sem greiða eingöngu fjármagnstekjuskatt, fari að greiða til framkvæmdasjóð aldraðra (klap klap klap), og hinn meingallaða nefskatt, sem er sú mesta tekjuskerðing á launafólk með stóra fjölskyldu! Ég sakna í þessum tillögum að þessir aðilar greiði einnig útsvar til sveitarfélagsins eins og aðrir. Samkvæmt fréttum S2 í kvöld munar um 2 millur á milli hjóna sem greiða skatta eins og "venjulegt" fólk og þeirra sem greiða bara sín 10%.

Svo er það með furðu að hægt sé að moka peningum úr þessum framkvæmdasjóði í bæklinga og launagreiðslur, peningar sem á að fara í uppbyggingu til aldraða, s.s. húsnæði og fl. Og þetta hafa heilbrigðisráðherrar gert án athugasemda í gegnum áratugi. Þarna er eitt dæmi um skatt sem fer í eitthvað annað rugla en það sem það á að fara í, svona eins og olíugjaldið, sem ætti með sönnu að fara í vegaframkvæmdir,en stór hlui fer í rugl.

Eins og skáldið sagði eitt sitt: Þetta eru asnar, Guðjón! 

Kæru kjósendur, ekki kjósa yfir ykkur ósómann enn eina ferðina, farið í kalda sturtu og farið að vakna. 

Lifi byltingin í vor! 


Einn fyrir háttinn

Jæja, nýskriðinn inn eftir gott "pennsla skvett". Var að koma af vinnustofunni frá því að nudda olíunni á strigan og hlustaði á meðan á brot úr gömlum leikritum og óperuna Rigoletta. Það er allavega skárra en að velta sér uppúr pólitíkinni. En (verð að fá að rausa)  miðað við fréttir undanfarna daga eru greinilega að koma kostningar, menn bara spreða milljörðum til hægri og vinstri eins og skítadreyfarar. Samgönguráðherra er að reyna að toppa landbúnaðarráðherra með tillögum um vegabætur og tvöfaldanir og formaður bygginganefndar hátæknisjúkrahúss farinn að brýna framtennurnar. Nú skal sko fara að framkvæma! Lofa nógu mikið, rugla fólk í rýminu, tala sem minnst um það sem ætti að ræða um og halda kjafti um rest! Það hefur t.d. ekki nema einn þingmaður gagnrýnt vitleysuna varðandi Byrgið, þeir sem bera ábyrgð, rembast við að halda kjafti og vona bara að landinn verði búinn að gleyma öllu í maí. Þó hafði einhver félagsmálaráðherran vit á að láa sig hverfa áður en ósköpin dundu yfir. Hann sá þetta fyrir. Svo tók nú steininn úr, þegar Halldór B fór bara að setja saman ríkisstjórn í beinni í hádegisviðtali í gær! Það er semsagt búið að ákveða niðurstöðuna og valið stendur á milli Framsóknar, (ef flokkurinn verður þá enn til í vor) og Samfó, ef hún vill vera með Íhaldinu. Mín ósk er sú að bæði Famsókn og íhaldið taki sér a.m.k. 8 ára launalaust leyfi frá störfum og fari að sinna gæslumálum í Írak, svo að þeir átti sig á hvað þeir voru að styðja þarna um árið. 

Lifi byltingin í vor!
(hvernig svo sem við förum að því!)


Eitt tapið enn!

Jæja, fólkið hérna á bænum liggur eins og klessa eftir allan æsinginn eftir handboltann áðann. Þið vitið það eflaust að við töpuðum með naumum mun. Crying

Baráttan um fjóshauginn - framhald?

Þeir gestir sem urðu vitni af fjóshaugabullinu í mér í haust mega eiga von á framhaldi af þeim óskapnaði. Eftir atburði helgarinnar verður maður hreinlega að fara að setja sig í stellingar og klára næsta kafla. Þeir sem misstu af þræðinu eða hafa ekki lesið, má sjá þetta hér.

Þetta er alveg magnað, allt vitlaust í Frjálslyndum (eðlilega), Jón Baldvin lemur bara í borð (eðlilega) og ISG er orðin eins og sálfræðingur í atferlisfræðum, þegar hún er að analísera Samfylkinguna. Framsókn mokar milljörðum í landbúnaðinn, (sleppa reyndar hænunum, beljunum  og grísunum) og endurstilla á lista hjá sér, allir voða ánægðir með Árna hjá Sjöllum, nema gamli vinur minn Georg Brynjars og formaður sjálfstæðisflokksins steinþeigir yfir öllu saman, enda er það eina sem Sjallar hafa gert og geta gert, er að þegja allt í hel!


Taðhaus?

Annars hafði ég heitið því að ræða ekki pólitík (verð alltaf svo brjálaður út í þetta lið), en eftir að hafa þurft að hlusta á Guðna Ágústsson reyna að réttlæta 16 milljarða af skattpenngum okkar í að vernda landbúnaðinn í útvarpi í gær,  fer ég að halda að hann sé með ullarblandað tað í stað heila, því að hann hreinlega gat ekki svarað fráttamanni af neitu viti annað en að segja að "lambakjöt væri gott og allir ætti að éta það (í hvert mál. innskot Bragi). Minnir mig á söguna um Lukku Láka, Gaddavír á gresjunni, en þar átti hetjan í baráttu við nautgripabændur, sem vildu leggja undir sig allar sléttur undir nautgripi. Þar þótti mönnum bara sjálfsagt að éta T-bón í hvert mál og voru ekki að hafa fyrir því að blanda kartöflum eða papriku við, enda voru þeir í baráttu við grænmetisbændur, sem vildu girða af garðana sína.

Og ég tek undir það sem aðrir hafa verið að gagnrýna að hvernig getur ráðuneytin verið að lofa milljörðum fram á næsta kjörtímabil? Er þetta lið svo veruleikafyrt að halda að þeir lifi endalaust eins og Kastró og haldi að þeir virkilega ráði á næsta kjötímabili?
16 milljarðar í landbúnað
3 milljarðar í Háskólann
Neskattur sem á eftir að moka inn seðlum fyrir ríkis-einkarekið RUV
Fjöldinn af þeim einstaklingum sem ekki borga skatta, NEMA 10% fjármagnstekjuskatt og losna við að greiða útsvar til bæjarfélagsins og fl.

Er ekki kominn tími til breytinga? Ha? Í alvöru!
Crying


Myndir

Þá er ég búinn að setja inn nkkrar myndir eins og ég lofaði.Þetta eru að vísu eldri myndir en er að taka myndir af því nýjasta og geri ráð fyrir að setja inn um helgina. Þið komist á linkinnhér til hliðar undir myndaalbúm eða smella hér.
Njótið vel.

Nýr flokkur?

Ég nefndi það í síðustu færslu að það væri kannski bara sniðugt af Margréti Sverris, Krisinni H og öðrum utan"gátta" frambjóðendum að stofna bara nýjan flokk, til að koma heitustu málunum á framfæri. Það má bæta Hjálmari Árna við þennan hóp.
Annars ætlaði ég ekki að tala neitt um pólítík, en ég bara varð að koma þessu að. Það sagði við mig vinnufélagi minn í morgun, að laugardagurinn hafi verið frábær,  Chelsi tapaði og  Ísland vann Ástralíu og prókjör Framsóknar var í gangi. Sunnudagurinn var aftur á móti hræðilegur! Tap i handbolta og tap hjá Hjálmari! Gat ekki endað verr, sá dagur, tjáði hann mér. Við vinnufélagarnir þurftum að setja saman stuðningshóp, til að hugga hann og samt er hann ekki Framsóknarmaður!
Ég nánanst sofnaði yfir Eurovision undankeppninni og samkvæmt sögn minnar spúsu, þá missti ég ekki af miklu, en þó var ég búin að heyra þessi lög í útvarpi í vikunni og var nokkuð viss um tvö af þeim þrem næðu áfram, var ekki viss með Blómabörnin. Þótti það falskt sungið!
Reyndar var ég á vinnustofu minni um helgina að kreista fram eitthverju viti úr penslunum með misjöfnum árangri og skellti mér á opnun sýningarinnar Tvísýna, sem opnuð var í Listasafni Reykjanesbæjar á laugardag, Þrælflottar myndir hjá þeim Hlaðgerði Írisi og Aroni Reys, Hlaðgerður með þessa þrælflottu blæbrygði í andlitsmálun og ofurnákvæm og Aron svona skemmtilega "hrár" en dulúður í sínum verkum. Mæli með sýningunni!

Annars heyrði ég ansi skemmtilega auglýsingu í útvarpinu áðan, en þar var stuðningshópur að hvetja hlustendur að standa við bakið á "strákunum okkar" og sýna stuðning í verki! OK, ég er staddur á Íslandi og strákarnir eru í þýskalndi og vonandi heyra þeir öskrin í mér núna: ÁFRAM ÍSLAND!

Góðar stundir 


Geisp eða gaspr!

Hvurs lax! Það er orðin full vinna að les bloggin hjá ykkur, félagar og gefa kommett þar sem við á. Þannig er það nú hjá mér þessa dagana að ég er illa haldinn af ritleti eftir langann vinnudag. Þegar prótínið er farið að hafa áhrif á lífærin á manni eftir kvöldmatinn, breytist maður í þægt sófadýr fyrir framan fréttirnar, og svarar stundum með eins atkvæðis orðum og segir já þar sem maður átti að segja nei þegar frúin reynir að ná sambandi við nánast heiladauðann eiginmanninn! Meira að segja er manni boðið góðann dag eftir að hafa dottið út af og þarf þá að setja á Stöð2 plús til að ná restinni af bullinu í fréttunum. Ekki það að maður hafi misst af miklu. Trúðarnir á Alþingi halda áfram að ganga fram af fólki, ástandið í Byrginu orðið eins og á síðustu dögum Berlínar í seinni heimstyrjöldinni og ráðherrar vísa á hvern annan, þegar talið berst að ábyrgð varðandi greiðlur til Byrgisins. Hef heyrt þetta áður! Málefni Byrgisins er eins og misheppnaður ættingi, sem enginn vill þekkja eða taka á.
Margrét S ætti að skella sér í formanninn, aðeins að velgja þeim Gauja og Magga undir eyrum, þó aðallega til að setja korktappa í túlann á þeim Jóni og Co, Ný-rasistunum, sem poppuðu upp í haust. Ef ekki, þá er örugglega pláss fyrir hana í öðrum flokkum. Kannski ætti Margrét og Kristinn bara að stofna nýjan flokk, ha? Og þeir sem ekki hafa hljómgrunn í sínum flokki að ganga til liðs við þau, ha! Margt vitlausara en það.

En vitið þið bara hvað, nú er fólk orðið svo moldríkt hér á Íslandi að hesthúsin eru orðin flottari en íbúðirnar, sem eigendur hestanna búa í. Bara eitt st. 25 hesta hús kosta skitnar 30 millur! Ég er bara farinn að átta mig á því að kannski sé best að kaupa hest, eitthvað hljóta þeir að ávaxta sig. Kannski skíta þeir bara peningum, svei mér þá! Svo er hægt að beita þeim á blettinn hjá sér, þá þarf maður ekki að slá. Svo ef harnar í ári, jæja, ég á alltaf gömlu salttunnuna, sem ég erfði eftir hann afa, hún rúmar hest eða svo!

Þessi bloggfærsla er svo algjörlega á ábyrgð þeirra sem lesa hana og túlka rangt, því að ekki get ég borðið neina ábyrgð á gasprinu í mér, þegar svona er áliðið kvölds!

Góðar stundir!

Geisp! 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband