11.4.2007 | 17:48
Finnsk skemmtisaga
Ég er að fara til Finnlands í vor og fannst upplagt að segja frá þeim bræðrum Pekka og Júkka. Þeir eru víst eins og Bakkabræður okkar íslendinga.Sögurnar áttu að koma í staðarblaði fyrir nokkrum árum síðan og var ég beðinn um að myndskreyta nokkrar sögur en þær komust aldrei á prent. Hér er sú fyrsta:
Þeir bræður Pekka og Júkka voru staddir upp í sveit. Eftir að hafa ekið um sveitina nokkuð lengi þurftu þeir að gera þarfir sínar, hægja á sér, eins og sagt er og því leituðu þeir uppi útikamar á góðum stað. Pekka fór inn á undan en var grumsamlega lengi á kamrinum. Júkka var farið að leiðast þófið, enda orðið mikið mál. Hann opnar því hurðina á kamrinum il að athuga hvort Pekka væri ekki að verða búinn. Þá sér Júkka að Pekka er að pota með spítu ofan í kamarinn.
- Hvað ertu að gera, Pekka? spyr Júkka.
- Ég missti jakkann minn ofan í! svaraði Pekka.
- Blessaður láttu jakkann eiga sig, ég verð að komast að núna áður en ég geri í buxurnar!
- Sko, mér er svo sem sama um jakkann, sagði Pekka þrjóskur. En það var rækjusamloka í vasanum og ég vil ná henni upp úr!
Kem svo með hinar við tækifæri, góða skemmtun
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
he he he þessi er góð ... fleyri svona sögur óskast .. eigðu góða helgi ..
Margrét M, 13.4.2007 kl. 14:32
AUbara
aldrei rækjusamloku.
Ljós í föstudagsnótt
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 13.4.2007 kl. 22:42
hahah ojojoj góður þessi !!!!!
Sigrún Friðriksdóttir, 14.4.2007 kl. 05:14
Takk fyrir sætu kveðjuna
Sigrún Friðriksdóttir, 15.4.2007 kl. 00:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.